Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. október 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna hafnarsvæðis á Sauðárkróki

Skipulagsstofnun staðfesti 9. október 2025 breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. apríl 2025.

Í breytingunni felst að heimilt byggingarmagn á hafnarsvæði H-401 á Sauðárkróki er aukið úr 45.000 m2 í 73.500 m2 til að veita svigrúm til stækkunar og eflingar hafnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda