Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. október 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna íbúðarbyggðar ÍB-404

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. október 2025, breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. febrúar 2025.

Í breytingunni felst að nýjum íbúðum á reit ÍB-404 Ránarstígur – Hegrabraut fjölgar úr 10 í 20. Heildarfjöldi íbúða verður þá 280 eftir breytingu. Reiturinn stækkar um 0,5 ha.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.