Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. mars 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Skútustaðahrepps vegna íbúðarbyggðar í Vogum 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 5. mars 2025, breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011 - 2023 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. janúar 2025.

Í breytingunni felst skilgreining á nýrri íbúðarbyggð 565-ÍB fyrir allt að 7 íbúðarlóðir, frístundabyggð 332-F og landbúnaðarsvæði minnka til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.