Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. ágúst 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Skagabyggðar vegna efnistökusvæða við Skagabúð, Húnabyggð

Skipulagsstofnun staðfesti 3. júlí 2025 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Skagabyggðar 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 8. apríl 2025.

Í breytingunni felst að endurskilgreina á ný efnistökusvæði við Skagabúð ES26 þar sem heimilt verður að taka allt að 49.000 m3 af efni, og jafnframt auka við efnistökuheimild á þegar skilgreindum efnistökusvæðum ES15 og ES10, samanlagt 108.000 m3 af efni vegna viðhalds vega.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.