Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. febrúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi fyrrum Seyðisfjarðar vegna stækkunar hafnarsvæðis á Seyðisfirði

Í breytingunni felst stækkun á hafnarsvæði um 3 ha svæði með um 149.000 m3 landfyllingu og 280 m löngum viðlegukanti. Smábátahöfn er færð austar og nýtt safnasvæði skilgreint vestan megin á skipulagssvæðinu. Iðnaðarsvæði skólphreinsisstöðvar er fært frá hafnarbakka og íbúðarsvæði ásamt verslunar- og þjónustusvæði við árfarveg Búðarár eru felld út.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.