Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. ágúst 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Flóahrepps vegna stækkunar íbúðarbyggðar, Stóra-Ármót

Skipulagsstofnun staðfesti 26. ágúst 2025 breytingu á Aðalskipulagi Flóahrepps 2017-2029 sem samþykkt var í sveitarstjórn 26. júní 2025.

Í breytingunni felst stækkun íbúðarbyggðar ÍB4 úr 9 ha í 13,6 ha og fjölgun lóða úr 7 í 10.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.