Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. apríl 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna miðsvæðis Dalvíkur

Skipulagsstofnun staðfesti, 15. apríl 2025, breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 18. mars 2025.

Í breytingunni felst stækkun á íbúðarsvæði 302-ÍB um 0,5 ha og fjölgun um 15 íbúðir. Útivistarsvæði 308-O og stofnanasvæði 304-S minnka til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.