Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. janúar 2026

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna frístundabyggðar F23 í landi Ljárskóga.

Skipulagsstofnun staðfesti 8. janúar 2026, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032, sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. október 2025.

Í breytingunni felst að afmörkun frístundabyggðar F23 er breytt, skiptist í tvö svæði og lengist syðra svæðið til suðurs. Heildarstærð svæðisins minnkar úr 18,2 ha í 17,5 ha og stækkar aðliggjandi landbúnaðarland (L1) til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.