Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. október 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna íþróttasvæðis og svæðis fyrir þjónustustofnanir

Skipulagsstofnun staðfesti 30. október 2024, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 9. október 2024.

Í breytingunni felst stækkun íþróttasvæðis (O1) í Borgarnesi úr 5,6 ha í 6,3 ha yfir hluta nærliggjandi íbúðarsvæðis (Í4) og svæðis fyrir þjónustustofnanir (Þ3) sem minnka til samræmis. Nýtingarhlutfall íþróttasvæðisins hækkar úr 0,12 í 0,25.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.