Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. apríl 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna afþreyingar- og ferðamannasvæðis í Langjökli

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. apríl 2025, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 26. febrúar 2025.

Í breytingunni felst skilgreining á um 5 ha afþreyingar- og ferðamannasvæði AF36 á Langjökli vegna áforma um að útbúa manngerðan íshelli til móttöku ferðamanna.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.