Fara beint í efnið

10. júlí 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Ásahrepps vegna efnistökusvæðis á Búðarhálsi

Skipulagsstofnun staðfesti, 9. júlí 2025, breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032 sem samþykkt var í hreppsnefnd Ásahrepps 21. maí 2025.

Í breytingunni felst að efnistökusvæði E8 er stækkað úr 1 ha í 2,3 ha og heimiluð efnistaka aukin úr 10.000 m3 í 49.000 m3. Óbyggt svæði minnkar til móts.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.