Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2025

Staðfesting á breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032 vegna nýs efnistökusvæðis E58 við Sigöldustöð

Skipulagsstofnun staðfesti 27. febrúar 2025, breytingu á Aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032 sem samþykkt var í hreppsefnd 22. janúar 2025.

Í breytingunni felst að afmarkað er nýtt 1 ha efnistökusvæði E58 við afrennslisskurð Sigöldustöðvar sem nýtt verður við stækkun stöðvarinnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1.mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.