Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. júní 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna Glerártorgs og nánasta umhverfis

Skipulagsstofnun staðfesti 30. júní 2025, breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. maí 2025.

Í breytingunni felst að hluti íbúðarhverfis ÍB4 og verslunar- og þjónustusvæðis VÞ6 verður miðsvæði M3 með heimildum fyrir 200-250 íbúðum. Stærð svæðisins er 9 ha. Lega stofnstíga breytist.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.