Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.

Skipulagsstofnun staðfesti 12. desember 2024 breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. nóvember 2024.

Í breytingartillögunni felast áform um minnkun frístundabyggðar F29 í landi Efra-Sels um rúmlega 17 hektara þar sem fimm lóðir verða skilgreindar sem landbúnaðarsvæði.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.