Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. mars 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Aðalskipulagi Hafnarfjarðar fjölgunar íbúða innan íbúðarbyggðar ÍB10 Skarðshlíð

Skipulagsstofnun staðfesti, 6. mars 2025, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. febrúar 2025.

Í breytingunni er mörkuð stefna um fjölgun íbúða innan íbúðarbyggðar Skarðshlíðar ÍB10 úr 440 í 570 íbúðir. Um er að ræða textabreytingu í greinargerð .

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.