Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. janúar 2025

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna íbúðarbyggðar ÍB37 í landi Minna-Hofs

Skipulagsstofnun staðfesti, 22. janúar 2025, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2024.

Í breytingunni felst að landnotkun á 5 þegar byggðum íbúðarlóðum í landi Minna-Hofs er breytt úr landbúnaðarsvæði í íbúðarbyggð (ÍB37).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.