Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. október 2025

Staðfesting á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2023-2043

Skipulagsstofnun staðfesti 3. október 2025 Aðalskipulag Skaftárhrepps 2023-2043 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. júní 2025.

Um er að ræða endurskoðun á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022 sem fellur úr gildi við gildistöku hins nýja aðalskipulags. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands sem samþykkt var á sama fundi sveitarstjórnar.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.