30. desember 2010
30. desember 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Smygl og fíkniefnamál.
Um kl. 10:30 í dag fór Lögreglan á Eskifirði í samvinnu við Tollgæsluna á Eskifirði og yfirhundaþjálfara RLS til leitar um borð í flutningaskipinu El-Bravo sem lá í Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð. Við leit í skipinu lagði tollgæslan hald á óverulegt magn af vindlingum. Í tengslum við aðgerðina voru tveir karlmenn handteknir og fór lögreglan í húsleit á heimili þeirra í Fjarðabyggð . Hald var lagt á nokkur grömm af cannabis, neysluáhöld og cannabisplöntu, ásamt smygluðum vindlingum. Málin teljast upplýst og hefur mönnunum verið sleppt.