Fara beint í efnið

12. febrúar 2026

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. febrúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. desember 2025.

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. febrúar 2026, breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. desember 2025.

Í breytingunni felst stækkun á íbúðarbyggð 314-ÍB um 0,5 ha til norðurs vegna áforma um lagningu nýrrar götu og fjölgun íbúða í einbýlis- og parhúsum. Óbyggt svæði minnkar sem breytingunni nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.