Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skorradalshrepps vegna Mófellsstaðakots

Skipulagsstofnun staðfesti 8. ágúst 2023 breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 5. maí 2023.

Í breytingunni felst heimild til að stunda ferðaþjónustu eða minniháttar atvinnustarfsemi tengt ferðaþjónustu meðal annars gistingu fyrir allt að 15 gesti í landi Mófellsstaðakots.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.