Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. maí 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna athafnasvæðis AT12 sunnan Fitja

Skipulagsstofnun staðfesti 16. maí 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 21. nóvember 2023.

Í breytingunni felast áform um rúmlega 4 ha stækkun athafnasvæðis AT12 sunnan Fitja og samsvarandi minnkun á opnu svæði OP26. Svæðið verður um 52,4 ha að stærð eftir breytingu. Skipulagsákvæði eru óbreytt.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.