Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. október 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna nýrrar íbúðarbyggðar í landi Árbæjarhellis II

Skipulagsstofnun staðfesti, 17. október 2023, breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. ágúst 2023.

Í breytingunni felst afmörkun 5,4 ha svæðis fyrir nýja íbúðarbyggð ÍB34 í landi Árbæjarhellis II. Landbúnaðarsvæði minnkar sem því nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.