Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna afmörkunar íþróttasvæðis ÍÞ2, hestamannasvæðis

Skipulagsstofnun staðfesti 5. júní 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. maí 2024.

Í breytingunni felst tilfærsla á íþróttasvæði ÍÞ2 til austurs, afmörkun breytist og svæðið minnkar úr 9,6 ha í 6,7 ha. Opið svæði OP8 breytist til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.