Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. nóvember 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna dælustöðvar fráveitu við Lækjarskóga

Skipulagsstofnun staðfesti 7. nóvember 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 sem samþykkt var í bæjarstjórn 28. ágúst 2023.

Í breytingunni felst skilgreining nýs landnotkunarreits I-243 fyrir fráveitumannvirki við Lækjarskóga norðan íbúðarbyggðar Skógahverfis.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.