21. maí 2024
21. maí 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Málstofa um stafrænt deiliskipulag þann 7. júní
Skipulagsstofnun stendur fyrir málstofu um innleiðingu stafræns deiliskipulags þann 7. júní næstkomandi, í húsakynnum Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b. Fundurinn mun standa frá kl. 9 – 11. Heitt verður á könnunni.
Undirbúningur fyrir innleiðingu stafræns deiliskipulags hefur staðið yfir um nokkurt skeið en ákvæði skipulagslaga um gerð stafræns deiliskipulags tekur gildi 1. janúar 2025. Kröfur um vinnslu og skil deiliskipulags á landupplýsingaformi fela í sér að aðilar sem koma að gerð deiliskipulags þurfa að tileinka sér nýjar aðferðir við gerð skipulagsuppdrátta auk þess sem innleiðing kallar á breytta nálgun og úrfærslu ýmissa þátta er varða framsetningu og skil á stafrænum gögnum. Mikilvægt er að tryggja samræmd vinnubrögð og farsæla innleiðingu stafræns deiliskipulags.
Á fundinum verður farið yfir hvers er að vænta við innleiðingu stafræns deiliskipulags og hvernig henni verður háttað þar sem meðal annars verður komið inn á tæknileg útfærsluatriði auk þess sem aðilar frá sveitarfélögum og stofnunum deila sinni sýn á málið.
Dagskrá:
Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar Opnunarávarp
Albert Þorbergsson, Skipulagsstofnun Stafrænt deiliskipulag - undirbúningsvinna og fyrstu drög
Tryggvi Már Ingvarsson, HMS Tengingar stafræns deiliskipulags við aðra gagnagrunna HMS
Þórarinn Jón Jóhannsson, Reykjavíkurborg Áskoranir í stafrænu deiliskipulagi
Samantekt og umræður
Fundurinn verður einnig sendur út á Teams en fjarfundargestir þurfa ekki að skrá sig til þátttöku.
Skráning fer fram hér .