Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. desember 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjóslys við Skrúð.

Lögreglan á Eskifirði rannsakar orsakir alvarlegs sjóslyss sem varð um kl. 08:00 í gærmorgun við svokallaðar Brökur norð-austan við Skrúð þegar vélbáturinn Börkur frændi NS-55 fórst. Tveir menn voru á bátnum og komst annar þeirra í björgunarbát og var bjargað um borð í fiskibát, en hinn lést.

Maðurinn sem lést hét Guðmundur Sesar Magnússon fæddur 1952. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn.

Engar frekari upplýsingar um framvindu rannsóknar verða gefnar að svo stöddu.