20. mars 2026
20. mars 2026
Samræmdar eftirlitsaðgerðir persónuverndarstofnana innan EES

Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur ákveðið að meginreglan um gagnsæi og fræðsluskylda ábyrgðaraðila gagnvart hinum skráða sé viðfangsefni samræmdra eftirlitsaðgerða aðildarríkja ráðsins árið 2026.
Persónuvernd er ein af 25 persónuverndarstofnunum á EES-svæðinu sem mun taka þátt í hinum samræmdu aðgerðum. Hefur stofnunin ákveðið að beina frumathugunum að matvöruverslunum og vinnslu þeirra á persónuupplýsingum í tengslum við netverslanir og sjálfsafgreiðslulausnir. Við þá ákvörðun var litið til stefnu stofnunarinnar fyrir árið 2026, en vinnsla persónuupplýsinga af hálfu netverslana er eitt af áhersluatriðum á árinu.