22. maí 2026
22. maí 2026
Samhæfður undirbúningur vegna almyrkva 12. ágúst
Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði í byrjun árs hefur unnið að samhæfingu undirbúnings íslenskra stjórnvalda vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.

Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði í byrjun árs hefur unnið að samhæfingu undirbúnings íslenskra stjórnvalda vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026. Þann dag má búast við auknu álagi á samgöngur, viðkvæm náttúrusvæði, innviði og viðbragðsaðila á vestanverðu landinu þar sem almyrkvinn verður sýnilegur.
Hlutverk stýrihópsins er að afla upplýsinga og hafa yfirsýn yfir verkþætti sem tengjast atburðinum og tryggja samræmda nálgun og upplýsingagjöf ráðuneyta og stofnana auk sveitarfélaga.
Undir forystu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra starfar einnig samráðsvettvangur helstu hagaðila þar sem farið er yfir stöðu mála, áhættumat og upplýsingagjöf.
Þrátt fyrir samhæfingu á landsvísu bera einstök sveitarfélög, lögregluembætti og stofnanir ábyrgð á sínu svæði líkt og venja er á öðrum álagsdögum.
Flestir íbúar á vestanverðu landinu njóta þeirra forréttinda að geta upplifað almyrkvann frá heimili eða í nærumhverfi sínu. Með því að velja hentugan stað nálægt heimili getur hver og einn lagt sitt af mörkum við að takmarka umferð og jafnframt stuðla að almannaöryggi og vernd viðkvæmra svæða.
Vegagerðin og lögreglan hafa þegar undirbúið ýmsar ráðstafanir vegna umferðar, s.s. vegalokanir og umferðartakmarkanir.
Fólk er hvatt til að fylgjast með opinberum upplýsingum á upplýsingagátt vegna almyrkvans Ísland.is og undirbúa sig í samræmi við leiðbeiningar yfirvalda og viðbragðsaðila.