Fara beint í efnið

30. maí 2026

RISAstórar smáSÖGUR 2026 komnar út

Rafbókin RISAstórar smáSÖGUR kemur nú út í níunda sinn. Í bókinni eru 17 áhugaverðar og skemmtilegar sögur eftir börn á aldrinum 6–12 ára. Sögurnar voru valdar úr fjölmörgum sögum sem bárust í smásagnasamkeppni á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, KrakkaRÚV og fleiri aðila sem standa að Sögum – samstarfi um barnamenningu. Markmið verkefnisins er að efla lestur og skapandi skrif barna.

Í sögunum fá ímyndunarafl, ævintýri, húmor og hversdagslegar hugmyndir barna að njóta sín. Rafbókin veitir einstaka innsýn í fjölbreyttan hugarheim ungra höfunda og sýnir hversu mikill sköpunarkraftur býr í börnum um allt land.

RISAstórar smáSÖGUR eru hluti af verkefninu Sögur – samstarfi um barnamenningu, þar sem börnum gefst tækifæri til að skapa eigið efni á fjölbreyttu formi og taka virkan þátt í íslensku menningarlífi.

Sögur – verðlaunahátíð barnanna

Útgáfa bókarinnar tengist jafnframt Sögum – verðlaunahátíð barnanna sem fram fór í Borgarleikhúsinu og var sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi barnamenningu og verk barna sjálfra fá sérstaka viðurkenningu.

Hægt er að horfa á upptöku af verðlaunahátíðinni hér:

Sögur – verðlaunahátíð barnanna 2026 á KrakkaRÚV

Lesa má meira um tilnefningar barnanna í frétt sem birtist fyrr í maí:

Sögur – tilnefningar barnanna kynntar