Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. janúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rannsókn á tildrögum þess að hundshræ fannst í Dýrafirði

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum fannst hundshræ í sjónum fyrir utan Þingeyri þann 8. desember sl. Lögreglan á Vestfjörðum hefur upplýst málið og mun það á næstu dögum fara til ákærumeðferðar. Einn aðili hefur viðurkennt að hafa aflífað hundinn með því að drekkja honum.

Lögreglan vill í þessu sambandi minna á ákvæði reglugerðar um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni, n.t.t. 8. gr. En þar segir eftirfarandi : „ Aðeins dýralæknar mega aflífa gæludýr, nema í neyðartilfellum þegar ekki næst í dýralækni og ætla má að sjúkdómur dýrs eða meiðsl valdi því óbærilegum kvölum eða séu banvæn.“