Fara beint í efnið

19. febrúar 2026

Rafræn námskeið með stuðningsefni um skipulag náms, kennslu og námsmats á adalnamskra.is

Á www.adalnamskra.is undir stuðningsefni er nú aðgengilegt efni um skipulag náms, kennslu og námsmats (SNKN), sett fram í þremur hlutum. Stuðningsefnið var gefið út í nóvember 2025.

Rafrænt námskeið SNKN

Sem liður í að styðja skóla í að ná utan um inntak og heildarmynd SNKN hefur verið gefið út rafrænt námskeið hér á adalnamskra.is. Námskeiðið leiðir þátttakendur í gegn um alla hluta SNKN en því fylgja einnig spurningar, verkefni til ígrundunar og hugmyndir að skipulagi starfsþróunarverkefna í tengslum við efnið.

Um SNKN

Á adalnamskra.is eru allar upplýsingar um SNKN.

Annað efni til stuðnings innleiðingar SNKN

Á adalnamskra.is hefur verið gefið út efni til stuðnings innleiðingar á SNKN í skólum. Um er að ræða skjal til þarfagreiningar og leiðbeinandi innleiðingaráætlun.

Opnir fundir um SNKN eru haldnir alla miðvikudag til 25. mars.

Tenglar á fundina eru hér.

Það er von okkar að SNKN og allt efni gefið út í tengslum við það komi að góðum notum.