Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. mars 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Páskar 2010 – opnunartími

Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að, eru bannaðar á ákveðnum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram. Tekið skal fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvikmyndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á föstudaginn langa en slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15:00 umræddan dag.

Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um opnunartíma um páskana 2010.