17. febrúar 2025
17. febrúar 2025
Þessi frétt er meira en árs gömul
Opnað fyrir framtalsskil einstaklinga 28. febrúar
Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins frá og með 28. febrúar. Öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2024 ber að skila skattframtali og telja fram. Lokaskiladagur er 14. mars.

Ef þú hefur spurningar eða lendir í vandræðum með framtalið má velja ólíkar þjónustuleiðir:
Spjallmennið Askur getur svarað ýmsum spurningum um framtalið
Boðið verður upp á framtalsaðstoð í síma
Senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is
Leiðbeiningar
Framtalsleiðbeiningar 2025 er tilbúnar og komnar á vefinn ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali.
Auðkenning á vef
Notast þarf við rafræn skilríki eða veflykil til auðkenningar inn á þjónustuvefinn við innskráningu.
Hvernig fæ ég rafræn skilríki?Rafræn skilríki fyrir ungmenni yngri en 18 áraHvar má nálgast týndan veflykil?