16. febrúar 2026
16. febrúar 2026
Opnað fyrir framtalsskil einstaklinga 27. febrúar
Skattframtal einstaklinga verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins frá og með 27. febrúar. Öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2025 ber að skila skattframtali. Lokaskiladagur er föstudagurinn 13. mars.

Ef þú hefur spurningar eða lendir í vandræðum með framtalið má velja ólíkar þjónustuleiðir:
Spjallmennið okkar getur svarað ýmsum spurningum um framtalið
Boðið verður upp á framtalsaðstoð í síma
Senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is
Leiðbeiningar
Framtalsleiðbeiningar 2026 er tilbúnar og komnar á vefinn ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali.
Auðkenning á vef
Notast þarf við rafræn skilríki eða veflykil til auðkenningar inn á þjónustuvefinn við innskráningu.
Auðkenni veitir upplýsingar um útgáfu rafrænna skilríkja?Rafræn skilríki fyrir ungmenni yngri en 18 áraHvar má nálgast týndan veflykil?