2. júní 2026
2. júní 2026
Nýtt samræmt námsmat orðið að veruleika
Nú í vikunni fá foreldrar og forsjáraðilar grunnskólabarna landsins í fyrsta sinn aðgang að niðurstöðum barna sinna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í gegnum Ísland.is. Það er ánægjulegur og mikilvægur áfangi í þróun nýs samræmds námsmats fyrir grunnskóla. Um er að ræða stöðluð próf sem gera það mögulegt að meta stöðu og framvindu barns í samhengi við jafnaldra á landsvísu.

Að baki liggur mikil vinna við að þróa prófin, byggja upp stafrænt kerfi sem styður við fyrirlögn og undirbúa framkvæmdina í nánu samtali við skólasamfélagið. Í mars síðastliðnum voru um 57.000 próf lögð fyrir nemendur í 4. til 10. bekk í stærðfræði og lesskilningi. Þátttakan fór fram úr björtustu vonum og sýnir að skólar hafa tekið virkan þátt í að móta og nýta þetta nýja verkfæri.

Frá upphafi hefur markmiðið verið að þróa námsmat sem nýtist í skólastarfi. Stöðu- og framvinduprófin eiga að gefa kennurum, nemendum og forsjáraðilum gagnlegar upplýsingar um stöðu og framvindu í námi og styðja við faglegt samtal um næstu skref.
Samvinna sem skiptir máli
Við viljum nota þetta tækifæri til að þakka kennurum, skólastjórnendum og sveitarfélögum um allt land fyrir samstarfið. Verkefnið hefur kallað á mikla vinnu, þolinmæði og lausnamiðað samtal. Samvinnan á milli allra þessara aðila hefur verið einstök.
Skólar fengu niðurstöðurnar sendar í síðustu viku og nú geta foreldrar og forsjáraðilar nálgast þær á Mínum síðum á Ísland.is. Þar með verður auðveldara fyrir heimili og skóla að eiga samtal um stöðu barna og framvindu í námi. Við höfum lagt mikla áherslu á að upplýsingarnar sem hvert barn fær um sínar niðurstöður séu skýrar og aðgengilegar, og upplýsandi fyrir bæði barnið sjálft og foreldra og forsjáraðila. Við vonum að sú verði upplifun fólks og tökum gjarnan við öllum ábendingum ef eitthvað mætti betur fara.
Hluti af lengri vegferð
Þótt þessum áfanga sé náð er verkefnið áfram í þróun. Prófin verða lögð fyrir árlega og með tímanum verður hægt að sjá hvernig framvindan er á milli ára. Þar liggja mikilvægustu tækifærin til framtíðar. Niðurstöður breyta nefnilega engu einar og sér, heldur það hvernig unnið er með þær við næstu skref í kennslu og í samstarfi heimila og skóla.
Við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu erum glöð og stolt af þessum áfanga og þökkum öllum sem hafa lagt sitt af mörkum við að koma Matsferli á þennan stað.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs