Fara beint í efnið

22. apríl 2026

Nýtt námsefni: Léttir - leiklist og hópefli í skólastarfi

Námsefnið Léttir leiklistarsmiðja er nú komið út á námsefnisvefnum okkar. Efnið inniheldur fjölbreytta leiklistar- og hópeflisleiki sem styðja við virka þátttöku nemenda og efla samvinnu, sjálfstraust og félagsfærni.

Léttir er þróað með þarfir barna í viðkvæmri stöðu í huga en hentar öllum nemendahópum og fjölbreyttum aðstæðum í skóla- og frístundastarfi.

Hagnýtt efni sem auðvelt er að nýta

Efnið býður upp á einfaldar og skýrar leiðbeiningar sem auðvelt er að grípa til í daglegu starfi. Þar má meðal annars finna:

  • Leiki sem efla samvinnu, sjálfstraust og tjáningu

  • Einfaldar og skýrar leiðbeiningar sem auðvelt er að grípa

  • Hugmyndir að heilum kennslustundum

  • Aðferðir sem henta fjölbreyttum hópum

Markmiðið er að styðja kennara og annað starfsfólk við að skapa öruggt og styðjandi námsumhverfi þar sem allir nemendur fá tækifæri til að taka þátt á sínum forsendum.

Samstarfsverkefni

Léttir er unnið í samstarfi við Borgarleikhúsið og Seljaskóla

Hérna má skoða námsefnið