26. nóvember 2025
26. nóvember 2025
Nýir gátlistar til að styrkja yfirferð skipulagsmála
Komnir eru út gátlistar sem ætlaðir eru til að styðja sveitarfélög og ráðgjafa við yfirferð skipulagstillagna áður en þær eru teknar fyrir

Skipulagsstofnun hefur þróað gátlista sem ætlaðir eru til að styðja sveitarfélög og ráðgjafa við yfirferð skipulagstillagna áður en þær eru teknar fyrir í nefndum og lagðar fram í Skipulagsgátt.
Sveitarfélög bera ábyrgð á gerð og yfirferð skipulagsáætlana og eru því gátlistarnir fyrst og fremst hagnýtt verkfæri sem stuðla að markvissari ferlum, skýrari gögnum og styttri málsmeðferðartíma.
Markmið gátlistanna er að:
Styðja sveitarfélög í eigin yfirferð og tryggja að lykilatriði varðandi form og efni skipulagstillagna liggi skýrt fyrir.
Auka skilvirkni í ferlinu í heild,
sveitarfélögum, stofnuninni og almenningi til hagsbóta.
Stuðla að samræmi og gæðum í vinnuferlum, bæði hjá sveitarfélögum og ráðgjöfum.
Skipulagsstofnun hvetur sveitarfélög og ráðgjafa til að nýta gátlistana við vinnslu og afgreiðslu skipulagsmála.
Eftirfarandi gátlista má nú finna undir útgefið efni á vef stofnunarinnar:
Gátlisti fyrir gerð aðalskipulags: Yfirferð skipulagsráðgjafa
Gátlisti fyrir gerð aðalskipulags: Yfirferð skipulagsfulltrúa
Gátlisti fyrir gerð deiliskipulags: Yfirferð skipulagsráðgjafa
Gátlisti fyrir gerð deiliskipulags: Yfirferð skipulagsfulltrúa
Útgáfan er hluti af stærra verkefni við endurskoðun á leiðbeiningaefni Skipulagsstofnunar. Hafir þú ábendingar um ofangreint má koma þeim á framfæri á skipulag@skipulag.is