25. júní 2026
25. júní 2026
Ný verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar um landgræðslu og skógrækt
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað verkefnisstjórn sem falið er að endurskoða landsáætlun um landgræðslu og skógrækt, en lögum samkvæmt skal gefa út landsáætlun eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og til tíu ára í senn. Verkefnisstjórnin hélt sinn fyrsta fund í morgun í starfstöð Lands og skógar við Vínlandsleið í Reykjavík.

Verkefnisstjórnin að loknum fyrsta fundi sínum á Vínlandsleið. Ljósmynd: Hrefna Jóhannesdóttir
Frá þessu segir í frétt á vef ráðuneytisins. Þar kemur fram að fyrsta sameiginlega stefna og framtíðarsýn í málaflokknum var gefin út í ágúst 2022 undir heitinu Land og líf: Stefna og framtíðarsýn í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031. Samhliða stefnunni var gefin út fimm ára aðgerðaáætlun fyrir tímabilið 2022–2026.
Auk þeirra áherslumála sem kveðið er á um í lögum leggur ráðherra sérstaka áherslu á vernd og endurheimt kolefnisríkra vistkerfa og vistkerfa sem eru mikilvæg fyrir líffræðilegra fjölbreytni. Jafnframt er lögð áhersla á aukna verðmætasköpun úr skógum landsins, aukið aðgengi að landupplýsingum og aukið samstarf stofnana á því sviði. Einnig er lögð áhersla á aukna þátttöku samfélagsins og tengingu aðgerða við lífsgæði og að útivist verði efld.
Verkefnisstjórninni er meðal annars falið að vinna stöðumat á framkvæmd gildandi stefnu þar sem metinn verður árangur, framgangur aðgerða og helstu áskoranir. Í framhaldinu verða unnin drög að endurskoðaðri stefnu og aðgerðaáætlun sem verða kynnt og send til umsagnar áður en endanleg áætlun verður lögð fram.
Í verkefnisstjórninni sitja:
Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, formaður,
Brynhildur Bjarnadóttir, dósent við Háskólann á Akureyri,
Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri, tilnefnd af sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Ingunn Agnes Kro, lögfræðingur,
Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Salome Hallfreðsdóttir, fulltrúi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
Hrefna Jóhannesdóttir, sérfræðingur hjá Landi og skógi, er starfsmaður verkefnisstjórnar.
Áætlað er að ný stefna og aðgerðaáætlun verði gefin út eigi síðar en 1. mars 2027.
Núgildandi áætlanir:
Land og líf: Stefna og framtíðarsýn í landgræðslu og skógrækt til ársins 2031
Land og líf: Aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt 2022-2026