Fara beint í efnið

10. júní 2026

Ný gildi um kolefnisforða fyrir Skógarkolefnisverkefni

Í nýju ítarefni sem birt hefur verið á vef Skógarkolefnis má finna viðmið um kolefnisforða jarðvegs í íslenskum gróðurhverfum, vistgerðum og vistlendi. Þar með fá skipuleggjendur verkefna undir Skógarkolefni aukin tól í hendurnar til að áætla kolefnisforða svæða í upphafi aðgerða.

Nýlega gróðursett lerkiplanta á rýru landi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Skipting lands í gróðurhverfi er mikilvægur þáttur í kortlagningu lands vegna nýskógræktar og við mat á skógræktarskilyrðum. Fyrir þau kolefnisverkefni í nýskógrækt þar sem kröfusett Skógarkolefnis eru nýtt þarf að áætla kolefnisforða svæða í upphafi aðgerða en viðmið til að styðjast við í slíku mati hafa ekki verið aðgengileg fram að þessu. Til að bæta úr þeirri þörf hafa viðmiðunargildi fyrir kolefnisforða jarðvegs nú verið birt á vef Skógarkolefnis í ítarefni kafla 3.1 þar sem fjallað er um grunnstöðu kolefnis.

Í viðmiðunargildunum er áætlaður kolefnisforði jarðvegs að 30 cm dýpt fyrir flestar þær einingar sem eru notaðar í kortlagningu fyrir nýskógrækt og eru byggðar á skiptingu lands í gróðurhverfi.

Viðmiðunargildin eru reiknuð fyrir vistgerðir á landi samkvæmt flokkun Náttúrufræðistofnunar, en hluti gagnanna sem voru notuð við að reikna út kolefnisforðann var fenginn úr fjölriti Náttúrufræðistofnunar nr. 54, Vistgerðir á Íslandi.

Viðmiðunargildin eru sýnd fyrir þær vistgerðir og vistlendi á landi sem upplýsingar náðu til. Eigendur og starfsmenn kolefnisverkefna geta nýtt sér þessar upplýsingar til að meta kolefnisforða svæða í upphafi verkefna og jafnframt tekið tillit til breytileika á milli búsvæða.