Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. ágúst 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Neistaflugið í Neskaupstað.

Þessi síðasta nótt Neistaflugs var talsvert erilsöm hjá lögreglu. Talsvert var um pústra og slagsmál. Einn maður situr í fangageymslu vegna húsbrots. Undir morgun var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur.

Í umferðareftirliti í tengslum við Neistaflugið í gær voru 25 aðilar kærðir fyrir of hraðan akstur.

Samtals hafa því 72 ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Eskifirði það sem af er helginni og þar af 22 við Höfn.

Engin umferðarslys hafa orðið í umdæminu það sem af er, en lögreglan vill beina því til ökumanna að aka varlega og gefa sér tíma til að komast á milli staða, og muna að aka ekki af stað fyrr en runnið er af mönnum. Lögreglan verður á ferðinni og kannar ástand þeirra sem hygjast aka af stað.