Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Námskeið um skipulagða glæpastarfsemi haldið á Íslandi

Þessa vikuna stendur hér á landi yfir námskeið á vegum samtaka evrópskra lögreglumennastofnana (CEPOL) en Lögregluskóli ríkisins skipuleggur námskeiðið í samstarfi við finnska lögregluskólann og Europol. Námskeiðið sækja 32 sérfræðingar frá 22 Evrópulöndum.

Yfirskrift námskeiðsins er OCTA and ECIM-Strategic Planning in the Fight against Organised Crime og á því hafa þátttakendur fengið fræðslu um og rætt notkun upplýsinga til að takast á við ógnir sem steðja að ríkjum Evrópu vegna skipulagðrar glæpastarfsemi.

Hér að neðan má sjá þátttakendur og leiðbeinendur á námskeiðinu.