Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. júlí 2025

Mjólkursamsalan á Selfossi - núverandi og áframhaldandi uppbygging, Sveitarfélagið Árborg

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að núverandi starfsemi og áframhaldandi uppbygging Mjólkursamsölunnar á Selfossi, Sveitarfélaginu Árborg, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir, svör við umsögnum og ákvörðun Skipulagsstofnunar eru aðgengileg í gagnagrunni umhverfismats.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 7. ágúst 2025.