Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. febrúar 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Maður lést við snorkl í Silfru

Kl. 13:16 í dag var björgunarlið og lögregla kallað að Silfru í Þingvallaþjóðgarði vegna meðvitundarlauss manns. Um var að ræða erlendan ferðamann sem var í 8 manna hópi undir leiðsögn leiðsögumanna við snorkl í vatninu. Við komu að bakkanum, að afloknu sundinu, missti hann meðvitund og var strax komið upp á bakkann þar sem leiðsögumenn hófu endurlífgun en hópurinn var með búnað til súrefnisgjafar og hjartastuðtæki með sér eins og skylt er fyrir þá sem fara með hópa í gjánna. Endurlífgun var haldið áfram þar til komið var með sjúklinginn með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík en þar var hann úrskurðaður látinn. Dánarorsök liggur ekki fyrir.

Viðbragðsaðilum, leiðsögumönnum og samferðamönnum mannsins var boðið upp á viðrunarfundi eftir atvikið af hálfu Rauðakross Íslands og áfallateymis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.