Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. janúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lýst eftir Mitsubishi YEA-87

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Mitsubishi ASX jepplingi með skráningarnúmerið YEA-87 en honum var stolið frá Heklu á Laugavegi í Reykjavík um helgina. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is

Samskonar bíll og var stolið frá Heklu á Laugavegi um helgina.