Fara beint í efnið

24. september 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lýst eftir golfbíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir golfbíl sem var svikinn út hjá umboðsaðila í lok júlí í sumar en mikilvægt er að finna bílinn vegna rannsóknar málsins. Um er að ræða golfbíl eins og sést á meðfylgjandi mynd. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100.