Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. febrúar 2026

Lokanir vegna flutninga 12. og 13. febrúar

Lokað verður á skrifstofu Skipulagsstofnunar eftir kl. 13 fimmtudaginn 12. febrúar og lokað föstudaginn 13. febrúar, vegna flutninga stofnunarinnar í Borgartún 21, húsnæði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Flutningurinn er liður í undirbúning fyrir fyrirhugaða sameiningu stofnana undir nýju nafni Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Sjá frumvarp.

Við opnum aftur á nýjum stað með óbreyttri starfsemi og verðum áfram með sömu vefslóð, netföng og símanúmer þangað til ný lög um sameiningu verða staðfest.

Opnunartími næstu daga:

  • Fimmtudagur 12.febrúar: 9-13

  • Föstudagur 13.febrúar: lokað

  • Mánudagur 16.febrúar: 9-15