Fara beint í efnið

1. júlí 2026

Leiðbeiningar um verndun augna frá Embætti landlæknis

Landlæknisembættið hefur tekið saman leiðbeiningar um hvernig best er að verja augun þegar fylgst er með sólmyrkva. Nauðsynlegt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu hvort sem er við deildarmyrkva eða almyrkva.

Sjónhimnan getur orðið fyrir varanlegum skaða á nokkrum sekúndum, ef horft er beint í sólina. Einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum síðar, sem minnkuð sjón, blindur blettur eða blinda. Leiðbeiningar um vörn fyrir augu þegar fylgst er með sólmyrkva byggja á reglugerð Evrópusambandsins (ESB) 2016/425 um persónuhlífar, sem hefur verið tekin inn í EES-samninginn og gildir því á Íslandi.

Nauðsynlegt er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu hvort sem er við deildarmyrkva eða almyrkva, vegna þess að ekki er öruggt að horfa beint á sólina án viðeigandi síu.

Sólmyrkvagleraugu skulu uppfylla EN ISO 12312-2:2015 staðalinn og bera CE-merkingu sem sýnir að þau uppfylli kröfur. Þessi gleraugu eru hönnuð til að vernda augun gegn sterkri sólargeislun og eru flokkuð sem persónuhlífar. Venjuleg sólgleraugu veita ekki nægilega vernd og ætti ekki að nota þau til að horfa á sólina. Ávallt skal skoða sólmyrkvagleraugu áður en þau eru notuð og ganga úr skugga um að þau séu óskemmd.

Öryggi augna - Hvernig á að fylgjast með sólmyrkva á öruggan hátt? | Sólmyrkvi 2026

Gátlisti – Sólmyrkvagleraugu

  • Gangið úr skugga um að gleraugun uppfylli EN ISO 12312-2:2015 staðalinn

  • Gangið úr skugga um að gleraugun beri CE-merkingu

  • Notið gleraugun alltaf við deildarmyrkva og almyrkva

  • Notið ekki venjuleg sólgleraugu

  • Skoðið gleraugun áður en þau eru notuð (þau mega ekki vera rifin eða rispuð)

  • Notið aðeins vottaðar vörur frá traustum framleiðendum

  • Horfið ekki beint á sólina án sólmyrkvagleraugna.

  • Horfið ekki á sólina í gegn um myndavélalinsur, kíki eða snjallsíma án viðurkenndra varna (filter, sólmyrkvaglesaugu)

Athugið sérstaklega:

  • Minnkandi birtustig er blekkjandi og getur leitt til þess að fólk gleymi að verja augun.

  • Að þegar almyrkvi á sér stað þarf að taka af sér sólmyrkvagleraugun til að sjá hina eiginlegu sólkórónu. Þetta augnablik þar sem óhætt er að horfa berum augum á sólmyrkvann varir í u.þ.b. 2 mín vestast á landinu og um 1 mín á höfuðborgarsvæðinu

  • Það þarf að setja á sig gleraugun um leið og sólin fer að ná í gegn á ný

  • Allir sem eru ekki á almyrkvasvæði (restin af landinu) þurfa að vera meðsólmyrkvagleraugu allan tímann

  • Sérstaklega þarf að horfa til öryggis barna

  • Óttist þú að hafa að hafa orðið fyrir ljósskaða skaltu leita læknis án tafar