16. mars 2026
16. mars 2026
Landspítali nýtur mikils trausts
Mikill meirihluti landsmanna treystir Landspítala mjög vel og hefur hlutfall þeirra sem treysta spítalanum vel farið vaxandi undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup um traust til stofnana.

Í könnuninni kemur fram að 78% landsmanna treysta Landspítala mjög vel. Þetta er þriðja árið í röð sem traust til spítalans hækkar en það mældist 64% árið 2023.
Landspítali mælist með meira traust en lögreglan (69%), Háskóli Íslands (66%) og heilbrigðiskerfið (59%) en hins vegar mælist Landhelgisgæslan með meira traust en spítalinn (83%).
Könnunin var gerð á tímabilinu 15. janúar til 4. mars 2026.