Fara beint í efnið

18. júní 2026

Lagabreytingar frá 1.júlí 2026

Þann 15. júní síðastliðinn samþykkti Alþingi breytingar um atvinnuleysistryggingar sem taka gildi 1.júlí 2026

Stytting á bótatímabili

Frá og með 1. júlí 2026 taka gildi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar sem fela í sér að hámarkslengd bótatímabils styttist úr 30 mánuðum í 24 mánuði.

Breytingin gildir um þá sem teljast atvinnulausir í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar frá og með 1. júlí 2026 og sækja um greiðslur atvinnuleysisbóta eftir þann tíma. Umsækjendur sem leggja fram nýja umsókn frá og með þeim degi munu því eiga rétt á atvinnuleysisbótum í allt að 24 mánuði, að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna.

Réttur þeirra sem þegar hafa sótt um atvinnuleysisbætur fyrir gildistöku lagabreytingarinnar helst hins vegar óbreyttur. Einstaklingar sem eiga virka umsókn eða hafa þegar hafið bótatímabil fyrir 1. júlí 2026 halda því 30 mánaða bótatímabili.

Námsþátttaka

Frá og með 1. júlí 2026 taka gildi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar sem varða nám samhliða atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt lagabreytingunni lækkar heimilt námsumfang sem einstaklingur getur stundað samhliða atvinnuleysisbótum úr 20 einingum í 12 einingar. Það verður því óheimilt að stunda nám umfram 12 einingar á námsönn. Þetta gildir einnig um nám sem er skilgreint sem nám með vinnu. Breytingin nær jafnt til náms á framhaldsskóla- og háskólastigi.

Viðurlög/Biðtími

Frá og með 1. júlí 2026 munu sér viðurlög eftir 24 mánaða nýtingu á bótarétti verða felld niður, það er, að umsókn einstaklings sem fær viðurlög eða biðtíma þegar 24 mánuðir eða meira hafa verið nýttir af bótatímabili er ekki synjað, eins og fyrri lög sögðu til um.