Fara beint í efnið

10. júní 2026

Kynning á skýrslu verðbréfaeftirlits Evrópu um niðurstöður eftirlitsaðila

Ársreikningaskrá Skattsins boðar til kynningarfundar fimmtudaginn 18. júní kl. 9:15 um niðurstöður eftirlitsaðila á evrópska efnahagssvæðinu með reikningsskilum útgefenda.

Hvar: Hjá Skattinum, Katrínartúni 6 og í streymi á Teams
Hvenær: fimmtudaginn 18. júní kl. 09:15. Húsið opnar kl. 9:00.

Halldór I. Pálsson, sérfræðingur hjá Ársreikningaskrá, fer yfir helstu niðurstöður skýrslunnar auk þess að fara yfir hvernig eftirliti er háttað hér á landi.

Fundurinn er til upplýsingar fyrir stjórnendur, endurskoðendur og alla þá sem að gerð reikningsskila koma.